Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

miđvikudagurinn 24. nóvember 2010

Nýtt námskeiđ: Physical Processes of Coastal and Marine Environments

Mike Phillips, prófessor viđ Swansea Metropolitan háskólann í Wales.
Mike Phillips, prófessor viđ Swansea Metropolitan háskólann í Wales.
Í vikunni hófst næsta þriggja vikna námskeið í meistaranáminu í haf- og strandsvæðastjórnun en námskeiðið kenna þeir Steingrímur Jónsson, prófessor við Háskólann á Akureyri og Mike Phillips, prófessor við Swansea Metropolitan háskólann í Wales. Námskeiðið fjallar um umhverfi haf- og strandsvæða með áherslu á haffræði og stjórnunaráætlanir. Umhverfislegir þættir á borð við öldur, strauma, hreyfingu botlaga, ólíkar strandir, landrof eða efnisflutningur og mögulegar afleiðingar af hækkun sjávarborðs og hnattrænnar hlýnunar, eru mikilvægir þegar kemur að skipulagi og stjórnun strandsvæða, enda tengist þeir öðrum þáttum sem hafa með áhrif manna að gera, þ.e. nýtingu, varnargarða, mengun og fleira. Í námskeiðinu verður farið í vettvangsferð að Holti í Önundarfirði, en Holtsoddi er nokkurskonar rannsóknarstofa undir berum himni þegar kemur að söndum og leirum.

Steingrímur Jónsson, prófessor viđ Háskólann á Akureyri.
Steingrímur Jónsson, prófessor viđ Háskólann á Akureyri.
Jöfnum höndum verður fjallað um viðfangsefni námskeiðsins út frá íslenskum aðstæðum sem og aðstæðum víða um heim. Rannsóknarsvið Steingríms Jónssonar snúa einkum að almennri haffræði hafsvæðisins í kringum Ísland, áhrifum ástands sjávar á líffræðilegar auðlindir, breytileika loftslags og áhrif þess, hafstraumum í kringum Ísland og breytileika þeirra og haffræði íslenskra fjarða. Mike Phillips mikilvirkur fræðimaður á alþjóðavísu, einkum sem meðlimur í Severn Estuary Research Advisory Gropu sem fjallar um framtíðarmál er varða viðbrögð við loftslagsbreytingum og hækkun sjávarborðs, hann er einnig varaformaður Haf- og strand vinnuhóps Hins konunglega landfræðifélags, í Bretlandi. Mike hefur birt yfir 50 rannsóknargreinar og bókakafla og hefur verið skipaður í ritstjórnarráð vísindatímaritsins Journal of Coastal Research. Hann gegnir nú stöðu yfirmanns School of Built and Natural Environment við Swansea Metropolitan háskólann.

Háskólasamfélagiđ

„Það áhugaverðasta við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er sú breiða sýn sem það veitir á samfélög, umhverfi og sjálfbærni. Námsferð á skútu um Ísafjarðardjúp við upphaf námsins var ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið mikil vinna en áhugaverð og skemmtileg."
Gísli Halldórsson, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón