mánudagurinn 31. ágúst 2009
Nýr hópur meistaranema bođinn velkominn
Síðastliðinn laugardag 30. ágúst buðu starfsmenn Háskólaseturs nýjan námsmannahóp í haf- og strandsvæðastjórnun velkominn. Hópurinn í ár er um það bil helmingi fjölmennari en í fyrra og sýnir þessi aukning líklega betur en flest annað hve vel hefur tekist til á því ári sem liðið er síðan námsleiðin var formlega sett af menntamálaráðherra. Hópurinn í ár er jafnvel fjölbreyttari en fyrsti hópurinn, en nemendurnir í ár koma frá Máritíus, Kanada, Bandaríkjunum, Englandi, Wales, Lettlandi, Frakklandi, Finnlandi, Þýskalandi og Íslandi. Akademískur bakgrunnur þeirra er einnig fjölbreyttur, allt frá líffræði, umhverfisfræði, stjórnmálafræði og listum.
Á laugardaginn fengu nýju nemendurnir tækifæri til að kynnast starfsfólk Háskólaseturs og hverjum öðrum, skoða sig um í húsnæði setursins og fá innsýn í hvað bíður þeirra á komandi vetri. Í framhaldinu var haldið í strandferð við Holt í Önundarfirði, þar sem boðið var upp á hákarl og kaffi og pönnukökur að íslenskum sið. Að lokum sneri hópurinn aftur í Háskólasetrið og fékk tækifæri til að spjalla við einn af nemendunum fyrsta hópsins, spyrja út í námið, lífið á Ísafirði og fleira sem þeim lá á hjarta.
Á sunnudaginn komu nemendurnir svo saman í Tunguskógi og fylgdu Kristjönu Einarsdóttur hjá Náttúrustofu Vestfjarða í gönguferð þar sem þeir fræddust um íslenskar plöntur og notuðu jafnframt tækifærið og tíndu gómsæt aðalbláber.
Kennsla hófst svo af fullum krafti í dag, mánudag en liður í henni þessa vikuna er málþing um skipulag og stjórnun strandsvæða sem fram fer á fimmtudag og föstudag.
Þótt flestir nemendurnir hafi skilað sér fyrir helgina er enn von á nokkrum í vikunni svo enn um sinn verður nokkuð að gera í því að koma fólki fyrir og hjálpa þeim að aðlagast lífinu á Ísafirði.
Það er spennandi vetur framundan í Háskólasetrinu!