Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

þriðjudagurinn 10. nóvember 2009

Meistaranemar gerast sjálfboðaliðar hjá Ísafjarðardeild Rauða krossins

Nýju sjálfboðaliðarnir, meistaranemarnir Sarah Nebel, Petra Granholm og Abby Sullivan.
Nýju sjálfboðaliðarnir, meistaranemarnir Sarah Nebel, Petra Granholm og Abby Sullivan.
Þrír nemar úr meistaranáminu í haf- og strandsvæðastjórnun gáfu nýlega kost á sér sem sjálfboðaliða hjá Ísafjarðardeild Rauða kross Íslands. Þetta eru þær Abby Sullivan frá Bandaríkjunum, Petra Granholm frá Álandseyjum í Finnlandi og Sarah Nebel frá Kanada.

 

Ísafjarðardeildin á, ásamt öðrum Rauða kross deildum á Norðanverðum Vestfjörðum, í samstarfi við Rauðakross deild í North Bank í Gambíu. Síðastliðinn vetur voru nemar í núverandi 9. bekk Grunnskólans á Ísafirði fengnir til að koma að þessu vinadeildarsamstarfi. Þeir hafa m.a. kynnt sér land og þjóð í Gambíu, en einnig ritað gambískum ungmennum sendibréf. Í fyrra fengu þeir aðstoð við bréfaskriftirnar frá nokkrum nemum í haf- og strandsvæðastjórnun sem þá voru sjálfboðaliðar Rauða krossins. Mikil ánægja var með þetta fyrirkomulag meðal nema sem kennara.

 

Nemar 9. bekkjar Grunnskólans á Ísafirði ásamt nýju sjálfboðaliðunum (aftarlega í mynd).
Nemar 9. bekkjar Grunnskólans á Ísafirði ásamt nýju sjálfboðaliðunum (aftarlega í mynd).
Um daginn var svo komið að því að halda kynningu á verkefnunum sem grunnskólanemarnir unnu um Gambíu og var félögum úr stjórn Ísafjarðardeildarinnar boðið að koma og hlusta ásamt nýju sjálfboðaliðunum. Allar kynningarnar fóru fram á ensku og er óhætt að segja að þær hafi heppnast vel. Einnig var þetta gott fyrsta tækifæri fyrir nýju sjálfboðaliðana til að kynnast nemum 9. bekkjar og er útlit fyrir skemmtilegt samstarf þeirra á milli í vetur.

Háskólasamfélagið

„Það áhugaverðasta við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er sú breiða sýn sem það veitir á samfélög, umhverfi og sjálfbærni. Námsferð á skútu um Ísafjarðardjúp við upphaf námsins var ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið mikil vinna en áhugaverð og skemmtileg."
Gísli Halldórsson, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón