ţriđjudagurinn 13. apríl 2010
Kennsla hefst á ný eftir páskafrí
Kennsla hófst á ný eftir páskafrí í meistaranámi í haf- og strandsvæðastjórn í gær. Námskeiðið sem um ræðir er námskeið um umhverfismat og ber enska titilinn Environmental Impact Assessment and Sustainability Managment Systems.
Kennarar námskeiðsins eru báðir heimamenn að þessu sinni. Ólafur Ögmundarson starfar hjá Matís á Ísafirði, en hann útskrifaðist með meistaragráðu í umhverfis- og auðindastjórnun frá Háskóla Íslands og fjallaði lokaverkefni hans einmitt um þátttöku almenings í umhverfismati. Einnig kennir á námskeiðinu Gunnar Páll Eydal frá Teiknistofunni Eik, sem er staðsett í sama húsi og Háskólasetrið. Gunnar lauk meistaranámi í auðlindastjórnun frá Simon Fraser University í Kanada og sérhæfir sig meðal annars í skipulagi óbyggða og dreifbýlis.