Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

miđvikudagurinn 5. janúar 2011

Kennsla hafin í meistaranámi

Guđmundur Ingi Guđbrandsson kennir fyrsta námskeiđ vorannar í meistaranáminu í haf- og strandsvćđastjórnun.
Guđmundur Ingi Guđbrandsson kennir fyrsta námskeiđ vorannar í meistaranáminu í haf- og strandsvćđastjórnun.
Á mánudaginn hófst kennsla á ný í meistaranáminu í haf- og strandsvæðastjórnun með síðasta kjarnanámskeiði námsins, Coastal and Marine Ecology. Einnig standa yfir endurtektarpróf fjarnema svo segja má að Háskólasetrið iði af lífi þessa fyrstu daga ársins.

Námskeiðið Coastal and Marine Ecology er kennt af Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfisfræðingi. Hann starfar sem verkefnastjóri hjá Stofnun Sæmundar fróða en stofnunin er rannsókna- og þjónustustofnun á sviði sjálfbærrar þróunar og þverfræðilegra viðfangsefna við Háskóla Íslands. Jafnframt sinnir Guðmundur kennslu við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ.

Háskólasamfélagiđ

„Það áhugaverðasta við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er sú breiða sýn sem það veitir á samfélög, umhverfi og sjálfbærni. Námsferð á skútu um Ísafjarðardjúp við upphaf námsins var ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið mikil vinna en áhugaverð og skemmtileg."
Gísli Halldórsson, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón