þriðjudagurinn 17. janúar 2012
Ísfirðingar og Akureyringar þreyta sama námskeiðið í hafrétti
Nú stendur yfir námskeiði HRT1076/CMM17 Law of the Sea, eða Hafréttur. Fyrri vika þess, sem hófst þann 9. janúar, var kennd í Háskólanum á Akureyri en sú seinni á Ísafirði. Námskeiðið er hluti af tveimur alþjóðlegum meistaranámsbrautum, Heimskautarétti við Háskólann á Akureyri og Haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða. Nú eru 12 nemendur úr Háskólanum á Akureyri, auk kennara og námsbrautarstjóra, staddir á Ísafirði.
Forsögu málsins má rekja til sumarsins 2011 þegar aðstandendur námsbrautarinnar í haf- og strandsvæðastjórnun fóru á fund norðanmanna til að kanna möguleika á samstarfi um námskeið. Úr varð á endanum að nemendur á Ísafirði færu norður og norðanmenn kæmu vestur í beinu framhaldi. Hluti hópsins tekur þó námskeiðið í gegnum fjarkennslubúnað þar sem ekki var á færi allra að ferðast á milli staða.
Nemendahóparnir hýsa hvorn annan og hefur formaður nemendafélagsins Ægis, Daniel Metzger, haft yfirumsjón með því að koma fólki fyrir.
Kennari námskeiðsins er Peter Orebech, prófessor í hafrétti við Háskólann í Tromsö í Noregi. Peter hefur talsvert látið til sín taka varðandi málefni sem lúta að þjóðréttarmálum Íslands, til dæmis makrílveiðar og jafnvel Icesave-deiluna. Í yfirstandandi viku námskeiðins munu sjónir beinast að fiskveiðirétti.
Spennandi verður að sjá hvernig fyrirkomulag þetta reynist, enda mikilvægt að hafa opin augu fyrir vænlegu samstarfi um kennslu og námskeiðshald.
Háskólasetur Vestfjarða býður gesti sína frá Akureyri velkomna til Ísafjarðar og vonar að námsdvölin hér verði góð.