mánudagurinn 8. mars 2010
Forstöðumaður á ferð í Finnlandi
Háskólasetur Vestfjarða og skólinn í Ekenäs eru að ýmsu leyti líkir, en þó ekki. Í Ekenäs er boðið upp á alþjóðlega námsleið í strandsvæðastjórnun, en námsleiðin þar á bæ er á grunnháskólastigi. Skólinn rekur stóra rannsóknar- og þróunarstofnun undir nafninu Aronia en engir framhaldsnemar stunda nám við skólann. Háskólasetrið og skólinn í Ekenäs sjá fram á áhugaverða samstarfsmöguleika í framtíðinni en háskólinn í Ekenäs hefur lengi stefnt að því að koma á fót meistaranámi í samstarfi við Åbo Akademi, ekki ósvipað samstarfi Háskólaseturs og Háskólans á Akureyri.
Háskólasetur Vestfjarða horfir einkum til samstarfs við finnska skólann hvað varðar kennara- og rannsóknalið hans en skólinn stendur afar vel að vígi hvað það varðar. Ekenäs skólinn horfir aftur á móti til þeirra möguleika sem samstarf í kennslu býður upp á, sem og til þess samstarfsnets sem Háskólasetrið hefur komið sér upp, enda vekur það athygli hve vel hefur gengið hjá Háskólasetrinu að fá til sín alþjóðlegan námsmanna- og kennarahóp.