föstudagurinn 21. október 2011
Fjórir vettvangsskólar vćntanlegir 2012
Eitt af verkefnum Háskólaseturs er að bjóða aðstoð við að skipuleggja dvöl erlendra vettvangsskóla og er þessi þjónusta að færast í aukana. Næsta sumar á Háskólasetrið von á fjórum vettvangsskólahópum hingað til Vestfjarða. Munu hóparnir eyða hér frá fimm dögum og upp í þrjár vikur. Þrír hópar eru frá Bandaríkjunum og einn frá Kanada.
Fyrsti hópur sumarsins er væntanlegur um miðjan maí. Er um að ræða hóp á vegum enskudeildar Háskólans í Connecticut og verður það í fyrsta sinn sem Háskólasetrið tekur á móti nemendum frá þeim háskóla. Dr. Tamarah Kohanski fer fyrir hópnum sem leggur stund á fornbókmenntir og sögu.
Rúmum mánuði síðar verður hér á ferðinni hópur frá Háskólanum í Washington. Er það í annað sinn sem við fáum þaðan hóp, en síðast voru þeir hér 2009. Þessir nemar leggja stund á hugmyndasögu og er dvölin á Vestfjörðum liður í þverfaglegu námskeiði, CHID (Comparative History of Ideas) Summer Program, sem fjallar um sambandið milli manns og náttúru. Umsjón með hópnum hefur Dr. Phillip Thurtle.
Síðan fylgja tveir hópar sem má segja að séu fastagestir því nemendahópar á vegum þessara skóla hafa heimsótt okkur árlega undanfarin fimm ár. Fyrri hópurinn er á vegum School for International Training (SIT) frá Vermont og leggur sá hópur stund á námi um endurnýjanlegar orkugjafir, Renewable Energy, Technology, and Resource Economics. Undanfarin ár hafa þessir nemar unnið ýmis verkefni og þannig komist í kynni við ýmsa aðila á svæðinu, bæði opinberar stofnanir og fyrirtæki sem og einstaklinga. Margir hér kannast því við þessa nemendahópa. Fyrirhugað er einnig að nemar næsta árs muni gista hjá ísfirskum fjölskyldum hluta úr dvölinni hér. Fagstjóri hópsins er Caitlin Wilson, doktorsnemi við Háskóla Íslands og hefur hún fylgt SIT hópunum undanfarin ár.
Hinn hópurinn er á vegum íslenskudeildar Háskólans í Manitoba í Kanada og kemur hann í fylgd Dr. Birnu Bjarnadóttur. Birna er forstöðumaður íslenskudeildarinnar, sem er sú eina sinnar tegundar í Norður-Ameríku og hefur hún haft veg og vanda af heimsóknum nemahópanna, frá fyrstu heimsókn á vegum deildarinnar til Vestfjarða árið 2007.
Á meðan á Vestfjarðadvölinni stendur fá hóparnir fræðslu um svæðið og gegnir Gísla Saga Súrssonar þar mikilvægu hlutverki. Nemendur njóta þar góðs af þekkingu og sagnamiðlun heimamanna og er t.a.m. farið í gönguferðir um slóðir Gísla Súrssonar í fylgd Þóris Arnar Guðmundssonar leiðsögumanns og er einleikur Elfars Loga Hannessonar um Gísla ávallt á dagskrá.
Það lítur úr fyrir að sumarið verði viðburðarríkt og við hlökkum til að taka á móti fastagestum jafnt sem nýjum gestum.
Fyrir frekari upplýsingar sjá Sumarháskólar á vef Háskólaseturs, eða hafið samband við Pernillu Rein verkefnastjóra pernilla(hjá)uwestfjords.is