mánudagurinn 28. mars 2011
Evrópskir sérfrćđinga funda um meistaranám í fiskeldi
Vinnuhópur um kennslu á meistarastigi samanstendur af tuttugu og fimm aðilum, en gert er ráð fyrir að fjórtán þeirra sæki fundinn í lok maí hér á Vestfjörðum. Val á fundarstað að þessu sinni stóð á milli fundar á Grikklandi í apríl eða fundar á Vestfjörðum í maí, en meirihluti vinnuhópsins valdi Vestfirði. Fundurinn er haldinn af Háskólasetri Vestfjarða og verður án efa ánægjulegt að taka á móti þessum erlendu gestum, en auk eiginlegra vinnufunda verða fiskeldisstöðvar og fiskvinnslustöðvar á svæðinu heimsóttar.