Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

ţriđjudagurinn 28. september 2010

CMM nemar taka ţátt í alţjóđlega átakinu 350.org

Andfćtlingar okkar, íbúar í Coffs Harbour í Ástralíu, létu ekki sitt eftir liggja í átakinu í fyrra og fögnuđu međ ţví ađ mynda tákn átaksins á ströndinni. CMM nemendurnir vona ađ sem flestir íbúar Ísafjarđar sjái sér fćrt ađ taka ţátt í slíkri myndatöku hér á Ísafirđi. Myndin er fengin af myndasíđu 350.org: http://www.flickr.com/photos/350org/
Andfćtlingar okkar, íbúar í Coffs Harbour í Ástralíu, létu ekki sitt eftir liggja í átakinu í fyrra og fögnuđu međ ţví ađ mynda tákn átaksins á ströndinni. CMM nemendurnir vona ađ sem flestir íbúar Ísafjarđar sjái sér fćrt ađ taka ţátt í slíkri myndatöku hér á Ísafirđi. Myndin er fengin af myndasíđu 350.org: http://www.flickr.com/photos/350org/
Meistaranemar í haf- og strandsvæðastjórnun taka þátt í alþjóðlegu herferðinni 350.org sem ætlað er að vekja athygli á ógninni sem stafar af loftslagsbreytingum. Þann 10. október árið 2010 (10/10/10) hefur 350.org biðlað til allra sem vettlingi geta valdið að setja á fót svokölluð „Global Work Party", eða nokkurskonar vinnuhátíðir til að sýna stjórnmálamönnum um allan heim fram á að fólk kalli eftir breytingum á umhverfisstefnum stjórnvalda. Nú þegar hafa yfir þrjú þúsund og fimmhundruð viðburðir verið skráðir í yfir hundrað og sextíu löndum!

Meistaranemarnir í haf- og strandsvæðastjórnun skráðu sig til leiks í verkefnið fyrir rúmum þremur vikum og hafa skipulagt fjölbreytta dagskrá fyrir 10/10/10 á Ísafirði. Dagskrá nemendanna kallast „Keep the Ice in Iceland - Ísafjörður!" en hana má nálgast á sérstakri vefsíðu dagskrárinnar.

Nemendurnir sem skipuleggja dagskránna hafa m.a. tekiđ ţátt í ađ hreinsa beđ í Ísafjarđarbć í tengslum viđ hátíđina.
Nemendurnir sem skipuleggja dagskránna hafa m.a. tekiđ ţátt í ađ hreinsa beđ í Ísafjarđarbć í tengslum viđ hátíđina.
Í tengslum við dagskrána hafa nemendurnir nú þegar tekið þátt í að hlúa að einu af blómabeðum Ísafjarðarbæjar ásamt umhverfisfulltrúa bæjarins, Ralf Trylla. Ralf hefur unnið náið með nemendahópnum frá upphafi verkefnisins og reynst þeim sérlega vel í skipulagningunni. Síðastliðinn laugardag tóku nemendurnir sem skipuleggja 350.org hátíðina höndum saman með nemendafélaginu Ægi við að hreinsa strandlengjuna í Skutulsfirði í tilefni af alþjóðlegum degi helguðum hreinsun stranda. Alls safnaðist eitt tonn af rusli á laugardaginn og munar sannarlega um minna. Í næstu viku munu þeir svo halda námskeið fyrir grunnskólanema á Flateyri um sjálfbærni. Þau vonast til að geta boðið upp á sambærileg námskeið fyrir alla skólana á svæðinu og að sem flestir krakkar geti tekið þátt.

Hápunktur hátíðarinnar er þó líklega sýning á nýrri íslenskri heimildarmynd sem ber titilinn „Future of Hope" og heimsókn aðstandenda myndarinnar á Ísafjörð í tengslum við sýningu hennar. Þeir sem vilja kynna sér myndina geta horft á sýnishorn úr henni hér eða kíkt á Facbook síðu hennar.

Frá einum af fjölmörgum skipulagsfundum nemendanna í Háskólasetrinu.
Frá einum af fjölmörgum skipulagsfundum nemendanna í Háskólasetrinu.
Dagskrá hátíðarinnar er enn í mótun og nemendurnir vilja gjarnan fá ábendingar og hugmyndir sem fallið gætu að dagskránni frá íbúum Ísafjarðar og nágrennis. Undir lok hátíðarinnar er svo ráðgert að taka hópmynd af íbúum og þátttakendum sem verður send inn á vefsíðu 350.org og vonast nemendurnir til að sem flestir sjái sér fært að mæta í myndatökuna.

Þeir sem vilja koma á framfæri spurningum, hugmyndum eða vilja leggja verkefninu lið geta haft samband við fulltrúa nemenda Megan Veley í gegnum tölvupóst: megan.veley(hja)gmail.com.

Háskólasamfélagiđ

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón