fimmtudagurinn 25. ágúst 2011
CMM kennari uppgötvar nýjan hafstraum
Í Fréttablaðinu í gær var greint frá því að nýr hafstraumur hefði uppgötvast yfir landgrunnshlíðinni norðan Íslands. Straumurinn, sem gæti haft umtalsverð áhrif á þróun loftslagsbreytinga og hlýnun jarðar, var fyrst rannsakaður og greindur af haffræðingunum Steingrími Jónssyni og Héðni Valdimarssyni hjá Hafrannsóknastofnuninni. Steingrímur gegnir jafnframt stöðu prófessors við Háskólann á Akureyri og hefur setið í meistaranámsnefnd haf- og strandsvæðastjórnunar (CMM) við Háskólasetur Vestfjarða frá upphafi auk þess að sinna kennslu við námsleiðina.
Vísindamenn frá Woods Hole hafrannsóknamiðstöðinni í Bandaríkjunum hafa undanfarin ár unnið að því í samstarfi við Hafrannsóknastofnun Íslands að kortleggja og mæla strauminn sem hefur hlotið nafnið North Icelandic Jet. Í kjölfar greinar sem rannsóknarhópurinn birti þann 21. ágúst síðastliðinn í vefútgáfu tímaritsins Nature Geoscience hefur uppgötvun þeirra Héðins og Steingríms vakið alþjóðlega athygli enda gæti straumurinn haft umtalsverð áhrif á þróun loftslagsbreytinga og hlýnun jarðar.
Mánudaginn 22. ágúst lagði rannsóknarskipið Knorr frá Woods Hole hafrannsóknarstofnunni upp í leiðangur frá Reykjavík til að halda rannsóknunum áfram. Með í för voru þeir héðinn Valdimarsson og Magnús Danielsen frá Hafrannsóknastofnun Íslands. Leiðangurinn heldur úti heimasíðu þar sem nálgast má frekari upplýsingar um framgang rannsóknanna.
Hér að neðan má einnig nálgast ýmsa tengla þar á fjölmiðlar og vísindatímarit sem hafa greint frá þessum niðurstöðum.