Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

föstudagurinn 11. nóvember 2011

Ađferđafrćđi: Nemendur rannsaka nćrsamfélagiđ

Albertína á Hesteyri
Albertína á Hesteyri
Nú er að ljúka námskeiðinu Aðferðafræði (Applied Methodology), en það er skyldunámskeið í haf- og strandsvæðastjórnun. Aðalkennari þess er Albertína Friðbjörg Elíasdóttir. Í námskeiðinu læra nemendur helstu undirstöðuatriði rannsóknaaðferða, og er lögð áhersla á aðferðir sem algengar eru í þverfræðilegum rannsóknum.

Albertína Friðbjörg er með BA í félagsfræði frá Háskóla Íslands (2005) og er að ljúka MSc í mannvistarlandfræði frá sama skóla. Hún hefur starfað við Háskólasetur Vestfjarða sem verkefnastjóri síðan í byrjun árs 2010, en hún hefur jafnframt kennt síðustu þrjú ár í frumgreinanámi Háskólans í Reykjavík í samvinnu við Háskólasetur Vestfjarða. Í námi sínu við Háskóla Íslands hefur hún lokið sjö áföngum í aðferðafræði þar sem ýmsum tegundum rannsóknaraðferða hafa verið gerð ítarleg skil.

Nora frá Ţýskalandi og Andrew frá Nýfundnalandi kynna niđurstöđur sínar
Nora frá Ţýskalandi og Andrew frá Nýfundnalandi kynna niđurstöđur sínar
Námskeiðinu lýkur með veggspjaldasýningu þar sem nemendur kynna rannsóknir sem þau unnu í tengslum við námskeiðið. Margar þessara rannsókna fjalla um viðhorf heimamanna á Vestfjörðum til umhverfismála; gjarnan samanborið við aðra hópa. Plakötin eru áfram til sýnis og eru áhugasamir hvattir til að koma við í húsakynnum í Háskólasetursins og kynna sér efni þeirra.

Háskólasamfélagiđ

„Það áhugaverðasta við meistaranámið í haf- og strandsvæðastjórnun er sú breiða sýn sem það veitir á samfélög, umhverfi og sjálfbærni. Námsferð á skútu um Ísafjarðardjúp við upphaf námsins var ánægjuleg reynsla. Þetta hefur verið mikil vinna en áhugaverð og skemmtileg."
Gísli Halldórsson, Íslandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón