Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

fimmtudagurinn 17. maí 2012

Ađalfundur Háskólaseturs

Aðalfundur Háskólaseturs Vestfjarða verður haldinn föstudaginn 18. maí næstkomandi kl. 13.00 í Háskólasetrinu. Fundurinn er opinn almenningi og eru vinir og velunnarar Háskólasetrusins hvattir til að sækja fundinn. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Embla Eir Oddsdóttir, frá Háskólanum á Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, flytja erindi um skipaflutninga á norðurslóðum....
Meira
mánudagurinn 14. maí 2012

Hafiđ, fjaran og fólkiđ

Ljósmynd: Andres Peters.
Ljósmynd: Andres Peters.
„Hafið, fjaran og fólki - menningararfleifð, tækifæri og ógnir sjávarbyggða" nefnis dagskrá sem fram fer í Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði, laugardaginn 19. maí, klukkan 13:30. Að dagskránni standa Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Íslenska vitafélagið og Fishernet í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða og Byggðasafn Vestfjarða....
Meira
miđvikudagurinn 9. maí 2012

Auđlindahagfrćđi: Opnir fyrirlestrar

Gabriela Sabau kennir yfirstandandi námskeiđ um auđlindahagfrćđi. Ţetta er í fjórđa skipti sem hún kennir viđ námsleiđina í haf- og strandsvćđastjórnun, en slíkur stöđugleiki í kennslumálum er afar mikilvćgur fyrir námiđ.
Gabriela Sabau kennir yfirstandandi námskeiđ um auđlindahagfrćđi. Ţetta er í fjórđa skipti sem hún kennir viđ námsleiđina í haf- og strandsvćđastjórnun, en slíkur stöđugleiki í kennslumálum er afar mikilvćgur fyrir námiđ.
« 1 af 2 »
Undanfarnar fjórar vikur hefur staðið yfir námskeiðið CMM05 Economics and Policy í meistaranáminu í haf- og strandsvæðastjórnun en það rennur sitt skeið á enda nú í vikulok. Kennari námskeiðsins, dr. Gabriela Sabau, kemur frá Memorial háskólanum í Nýfundnalandi en þetta er í fjórða sinn sem hún kennir námskeið í auðlindahagfræði við námsleiðina í haf- og strandsvæðastjórnun....
Meira
mánudagurinn 7. maí 2012

Efling tengslanets Háskólaseturs međ ţátttöku í erlendu samstarfi

Íslenskir ţátttakendur í vinnusmiđju um norrćnt hafsvćđaskipulag. Frá vinstri: Hafdís, Sigmar, Matthildur og Dagný.
Íslenskir ţátttakendur í vinnusmiđju um norrćnt hafsvćđaskipulag. Frá vinstri: Hafdís, Sigmar, Matthildur og Dagný.

Efling tengslanets Háskólasetursins er mikilvægt viðfangsefni, ekki síst með tilliti til staðsetningu okkar fjarri höfuðborgarsvæðinu. Háskólasetrið fagnar þeim tækifærum sem skapast hafa á síðustu misserum.

 

Nýverið, eða dagana 18. og 19. apríl, sótti fagstjóri meistaranáms í haf- og strandsvæðastjórnun vinnusmiðju í Osló í boði Norrænu ráðherranefndarinnar. Vinnusmiðja þessi fór fram í húsakynnum norska umhverfisráðuneytisins við Akershus-virkið í Osló. Auk fagstjóra fóru þrír fulltrúar frá Íslandi: Hafdís Hafliðadóttir, sviðsstjóri hjá Skipulagsstofnun, Sigmar Arnar Steingrímsson, sérfræðingur í umhverfismati hjá Skipulagsstofnun og Matthildur K. Elmarsdóttir, ráðgjafi skipulagsmála hjá Alta. Markmið vinnusmiðjunnar var að skilgreina sérnorræn viðfangsefni, þemu og gildi sem skal hafa að leiðarljósi við stefnumótun á sviði hafsvæðaskipulags á Norðurlöndum. Afar gagnlegt var að kynnast þeim áskorunum sem nágrannaþjóðir okkar kljást við á þessu sviði, sem og þeim sérfræðingum sem vinna á þessu sviði.

 

Kennslustjóri Háskólaseturs var einnig á faraldsfæti, en dagana 17. og 18. apríl tók kennslustjóri þátt í vinnufundi Aqua-Tnet í Arberdeen í Skotlandi. Vinnufundurinn fór fram í húsakynnum skosku hafrannsóknarstofunarinnar. Markmið vinnufundarins var að vinna áfram að leiðum til að efla og meta símenntun starfsmanna við fiskeldi og sjávarútveg - sérstaklega eflingu EC-VET kerfisins. Kennslustjóri var eini fulltrúi Íslands á fundinum en aðrir fundarmenn komu víðsvegar frá Evrópu.

 

 

sunnudagurinn 6. maí 2012

Fiskveiđiréttindi og fiskveiđistjórnun

Katie Auth, meistaranemi í haf- og strandsvćđastjórnun, kynna lokaritgerđ sína mánudaginn 7. maí.
Katie Auth, meistaranemi í haf- og strandsvćđastjórnun, kynna lokaritgerđ sína mánudaginn 7. maí.
Mánudaginn 7. maí mun Katie Auth, meistaranemi í haf- og strandsvæðastjórnun, kynna lokaritgerð sína sem ber titilinn Fishing For Common Ground: Broadening the Definition of ‘Rights-based' Management in Iceland's Westfjords. Kynningin, sem fer fram á ensku, hefst kl. 16:00 í stofu 1-2 í Háskólasetrinu og eru allir velkomnir. Leiðbeinandi Katie er dr. Niels Einarsson, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar en prófdómari er dr. Gísli Einarsson, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands....
Meira
Fyrri síđa
1
234567929394Nćsta síđa
Síđa 1 af 94

Háskólasamfélagiđ

„Auk samnemenda minna í CMM meistaranáminu mun ég sakna andrúmsloftsins í Háskólasetrinu. Stundir sem heilluðu tengjast oftast vettvangsferðum, t.d. að læra hvernig fiskeldi virkar í raun og veru með því að hoppa milli kvíanna og hjálpa til við að færa fiskinn á milli þeirra."

Astrid Dispert, Ţýskalandi CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón