Ritgerðarsmíð
Það á við um ritgerðarsmíð eins og um alla aðra þætti námsins að það
þarf að skipuleggja tímann vel. Mjög gott er að byrja á því að
skilgreina vel hvað efni ritgerðarinnar á að vera og byrja á því að búa
til efnisyfirlit og skrifa inngang. Þannig er efni ritgerðarinnar
afmarkað og síður hætta á að fara út af sporinu á meðan verið er að
afla heimilda og skrifa efni hvers kafla fyrir sig. Þegar verið er að
skrifa ritgerð í háskóla í fyrsta skipti er mikilvægt að kynna sér
hvort einhverjar sérstakar reglur gildi um ritgerðarsmíð í skólanum,
þ.e. varðandi uppsetningu, framsetningu tilvísana og heimilda o.s.frv.
Margir hafa skrifað ítarlegar leiðbeiningar um ritgerðarsmíð en Eiríkur
Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, hefur
skrifað mjög góðar leiðbeiningar sem er að finna hér.